Mannvit
Um Mannvit

Mannvit býður þjónustu á sviði verkfræði, ráðgjafar, stjórnunar, rekstrar og EPCM-verkefnastjórnunar. Mannvit er stærsta ráðgjafarfyrirtæki landsins á sviði verkfræði og tækni og þar starfa um 400 reynslumiklir verkfræðingar og tæknimenntað starfsfólk með fjölþætta reynslu á flestum sviðum verkfræðiþjónustu.
Mannvit var stofnað árið 2008 við sameiningu Hönnunar hf., VGK hf. sem veitt hafa verkfræðiráðgjöf síðan 1963 og Rafhönnunar hf. frá 1969. Aðalskrifstofa Mannvits er að Grensásvegi 1 í Reykjavík og einnig er starfsemi á Grensásvegi 11, Skeifunni 3 og Ármúla 42, ásamt sjö starfsstöðvum utan Reykjavíkur: á Akranesi, Akureyri, Húsavík, Egilsstöðum, Reyðarfirði, Selfossi, í Reykjanesbæ ásamt starfsemi erlendis.
Mannvit býður uppá alhliða þjónustu á sviði verkfræði og tækni og hefur á að skipa reyndum sérfræðingum á flestum sviðum verkfræðiþjónustu.
Þjónustan skiptist í eftirfarandi sérsvið:
Mannvit er leiðandi í ráðgjöf og lausnum með áherslu á græna orku og iðnað á Íslandi, Evrópu og Ameríku. Mannvit er með starfsstöðvar í Ungverjalandi, Bretlandi, Chile og Bandaríkjunum. Mannvit hefur skýra framtíðarsýn og stefnir á að efla starfsemi sína á alþjóðamarkaði þannig að árið 2015 verði 50% af heildarveltu tengd verkefnum erlendis.
Mannvit á hlut í öðrum fyrirtækjum á sviði verkfræðiþjónustu og ráðgjafar. Meðal þeirra eru HRV Engineering ehf., sem býr yfir sérhæfðri tækniþekkingu og reynslu í uppbyggingu stóriðjuvera, Vatnaskil ehf., Vatnaskil LWRC Ltd, Loftmyndir ehf, GTN GmbH og GTN LA.
Mannvit rekur vel útbúna rannsóknar- og prófunarstofu til athugunar á jarðefnum, bergi og steinsteypu. Einnig hefur fyrirtækið yfir að ráða færanlegri rannsóknarstofu til sýnatöku og prófana á vettvangi.