1.1.0001 03.10.11

Umhverfismat tillögu að samgönguáætlun 2011-2022

Samgönguráð hefur nú auglýst umhverfismat tillögu að samgönguáætlun 2011-2022. Í samgönguáætlun er mörkuð stefna fyrir allar greinar samgangna næstu tólf árin. Umhverfismatið fjallar bæði um helstu umhverfisáhrif stefnu og framkvæmda áætlunarinnar.

Frestur til að gera athugasemdir við umhverfismat samgönguáætlunar er til og með 4. nóvember 2011. Athugasemdir skal senda bréfleiðis til Innanríkisráðuneytisins, Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið postur@irr.is.

Umhverfismat samgönguáætlunar liggur frammi til kynningar hjá eftirtöldum samgöngustofnunum:

  • Flugmálastjórn Íslands, Skógarhlíð 22, 105 Reykjavík.
  • Siglingastofnun Íslands, Vesturvör 2, 200 Kópavogi.
  • Umferðarstofu, Borgartúni 30, 105 Reykjavík.
  • Vegagerðinni, Borgartúni 5-7, 105 Reykjavík.

 Einnig er hægt að nálgast auglýst gögn á vefsvæði samgönguáætlunar á vef Innanríkisráðuneytisins hér

 Umhverfismat samgönguáætlunar 2011-2022 var unnið af VSÓ Ráðgjöf og Mannviti.