1.1.0001 30.12.11

Maður ársins hjá Frjálsri verslun

Maður ársins hjá Frjálsri verslun

Eyjólfur Árni Rafnsson, forstjóri Mannvits

 

Eyjólfur Árni Rafnsson, forstjóri Mannvits, var valinn maður ársins í atvinnulífinu árið 2011 af dómnefnd tímaritsins Frjáls verslun.  Menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir afhenti Eyjólfi Árna viðurkenningu þessa efnis við formlega athöfn á vegum Frjálsrar verslunar  fimmtudaginn 29. desember. 

 

Val dómnefndarinnar byggir á skoðun hennar á ársskýrslum Mannvits og rekstrarárangri fyrrtækisins síðustu misseri.  Í fréttatilkynningu frá Frjálsri verslun segir m.a. um rökstuðning dómnefndarinnar:

 

“Eyjólfur Árni hlýtur þennan heiður fyrir árangur við að virkja íslenskt hugvit ásamt samstarfsfólki í þágu atvinnulífsins, nýsköpunar, fagmennsku í rekstri, athafnasemi og útsjónarsemi sem gert hefur Mannvit að framúrskarandi fyrirtæki og langstærsta ráðgjafafyrirtæki á sviði verkfræði og tækni á Íslandi.

 

Í mestu kreppu Íslandssögunnar hefur Mannvit færst í aukanna og aukið bæði veltu sína og hagnað þrátt fyrir minni framkvæmdir í vegagerð og byggingariðnaði og lítil verkefni á vegum ríkis og sveitarfélaga.”

 

Í nýjasta tölublaði Frjálsrar verslunar er langt viðtal við Eyjólf Árna og umfjöllun um Mannvit og rekstur fyrirtækisins.

 

Eftir samruna þriggja rótgróinna verkfræðistofa fyrir fjórum árum er Mannvit stórt fyrirtæki í íslensku atvinnulífi og reksturinn gengur vel. Heildarfjöldi starfsmanna á Íslandi og í Evrópu er rúmlega 400 manns og áætluð velta samstæðu Mannvits á árinu 2011 er um átta og hálfur milljarður króna.  Verkfræðiráðgjöf er yfirleitt ekki mjög áberandi í þjóðlífinu og það er því sérstakur heiður að forstjóri Mannvits er fyrstur til að öðlast viðurkenningu af þessu tagi fyrir rekstur á sviði tækniráðgjafar.    

 

Eyjólfur Árni leggur sjálfur áherslu á að hann fær viðurkenningu tímaritsins fyrir hönd Mannvits.  Hann er tilnefndur maður ársins í atvinnulífinu, en tilefnið er góður árangur Mannvits, stjórnenda þess og starfsmanna í rekstri fyrirtækisins á tímum sem almennt hafa verið atvinnulífinu erfiðir.

 

Mannvit óskar viðskiptavinum sínum og velunnurum farsæls komandi árs 2012.