Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins, Nasdaq OMX Iceland hf. og Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti við Háskóla Íslands hafa tekið höndum saman um að efla eftirfylgni íslenskra fyrirtækja við góða stjórnarhætti. Í þeim tilgangi er fyrirtækjum gefinn kostur á að að undirgangast formlegt mat á starfsháttum stjórnar og stjórnenda. Mannvit hf. hefur nú staðist þetta yfirgripsmikla úttektarferli og uppsker að launum viðkurkenninguna „Fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum“ (Exellence in Corporate Governance).
Það var endurskoðunarfyrirtækið KPMG sem gegndi hlutverki úttektaraðila. Niðurstaða úttektarinnar á stjórnarháttum Mannvits telst að mati Rannsóknarmiðstöðvarinnar gefa skýra mynd af stjórnarháttum fyrirtækisins og benda til þess að Mannvit geti að mörgu leyti verið öðrum fyrirtækjum til fyrirmyndar að þessu leyti.
Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq OMX á Íslandi óska forsvarsmönnum Mannvits hf. til hamingju með áfangann og vona að fleiri fyrirtæki fylgi í kjölfarið. Með því móti má að mati þessara aðila bæta stjórnarhætti fyrirtækja markvisst og að sama skapi efla upplýsingagjöf til markaðsaðila og annarra áhugasamra.
Viðurkenningunni er fyrst og fremst ætlað að ýta undir umræður og aðgerðir sem efla góða stjórnarhætti. Markmiðið er að matsferlið auki trúverðugleika og gagnsæi stjórnarhátta fyrirtækja gagnvart hluthöfum og öðrum hagsmunaaðilum. Í kjölfar viðurkenningarinnar ávinnur Mannvit sér rétt til að nota merki úttektarinnar í markaðs- og kynningarstarfi sínu næsta árið, til marks um árangurinn.
Umsögn nefndar: Fyrirmyndarfyrirtaeki_i_stjornarhattum__Mannvit_hf.pdf