1.1.0001 15.06.12

Mannvit hlýtur viðurkenningu

lagnir_vidurkenningFyrir nokkru hlaut Mannvit viðurkenningu fyrir lofsvert lagnaverk frá Lagnafélagi Íslands. Það var fyrir lagnahönnun og framkvæmd við Hjúkrunarheimilið í Mörkinni við Suðurlandsbraut 66. Það voru þeir Björgvin I Ormarsson loftræstihönnuður og Pétur Bjarnason lagnahönnuður sem tóku við viðurkenningunni fyrir hönd Mannvits úr hendi forsetans Ólafs Ragnars Grímssonar.

 

Viðurkenning Lagnafélags Ísland árið 2011 fyrir vönduð lagna- og loftræstikerfi var til aðila verkefnisins Hjúkrunarheimilisins að Suðurlandsbraut 66 í Reykjavík og voru viðurkenningarhafar Framkvæmdasýsla ríkisins, sem hafði umsjón með framkvæmdunum, Yrki arkitektar, lagnahönnnuður Mannvit hf., stjórntækjahönnuður Iðnaðartækni ehf., verktaki loftræstikerfis Stjörnublikk ehf., verktaki lagnakerfis Faglagnir ehf. og verktaki rafvirkjameistari Jóhann Hreiðarsson, einnig fékk hjúkrunarheimilið Mörkviðurkenningu. Aðalverktaki var JÁVERK ehf.

sjá nánar hér.

15.4.2013

Fyrsta skóflustungan tekin að nýja fangelsinu á Hólmsheiði

Fangelsi1Í byrjun apríl var fyrsta skóflustungan tekin að nýja fangelsinu á Hólmsheiði. Mannvit hefur séð um burðarvirkjahönnun, grundun, lagnahönnun ásamt loftræstingar- og hljóðvistarhönnun hússins.
26.3.2013

Eyjólfur Árni hvetur til fjárfestingar og orðvarari umræðu

1963_2013„Erlendir fjárfestar hafa greinilegar áhyggjur af pólitískum óstöðugleika á Íslandi, þeir óttast að ekki einu sinni undirritaðir samningar haldi gagnvart stjórnvöldum og hafa sumir fengið að kenna á afar hvikulu skattaumhverfi,“ sagði Eyjólfur Árni Rafnsson, forstjóri Mannvits, meðal annars í viðtali sem birtist á dögunum í blaðinu Sóknarfæri og dreift var
25.3.2013

Mannvit og Vinnuvernd bjóða upp á námskeið fyrir vinnuverndarfulltrúa

mannvit_color_vertMannvit hf. og Vinnuvernd ehf. standa fyrir tveggja daga námskeiði sem ætlað er vinnuverndarfulltrúum; öryggistrúnaðarmönnum, öryggisvörðum og mannauðsstjórum. Námskeiðið fer fram í Reykjavík dagana 16. og 17. apríl milli kl. 8:30-15:30. Það bókaðist hratt upp á síðustu tvö námskeið auk þess sem biðlistar mynduðust.
22.3.2013

Ársskýrsla Mannvits vinnur til verðlauna FÍT 2013

ÁrsskýrslaÁrsskýrsla Mannvits frá 2011 hlaut á dögunum silfurverðlaun FÍT 2013 í flokknum markpóstur og kynningarefni sem auglýsingastofan Jónsson & Le‘macks hannaði í samstarfi við innra þjónustusvið Mannvits.
7.3.2013

50 ára afmæli í dag!

1963_2013Í dag fögnum við merkum áfanga í sögu Mannvits, hálfrar aldar afmæli!
7.3.2013

Aukið samstarf stjórnvalda og íslenska jarðvarmaklasans

jarðvarmaklasinnVið upphaf ráðstefnunnar Iceland Geothermal 2013 í gær undirrituðu Eyjólfur Árni Rafnsson, forstjóri Mannvits og varastjórnarformaður Iceland geothermal klasasamstarfsins, og Steingrímur J. Sigfússon, atvinnu- og nýsköpunarráðherra samkomulag um aðkomu ríkisins að nokkrum af grunnverkefnum klasasamstarfsins.
6.3.2013

Sérfræðingar Mannvits með erindi á IGC í dag

IGC-2013-08Í dag hófst ein viðamesta alþjóðlega ráðstefna um jarðvarma sem haldin hefur verið á Íslandi: Iceland Geothermal Conference 2013 (IGC 2013). Þrír sérfræðingar frá Mannviti eru með erindi á ráðstefnunni; Sigurður St. Arnalds, Helga Tulinus og Claus Balizus. 
1.3.2013

Kynningarrit um samgönguáætlun 2011-2022

forsidaÚt er komið kynningarrit fyrir samgönguáætlun 2011-2022 en markmiðið með þessu riti er að kynna á aðgengilegan hátt tólf ára samgönguáætlun sem samþykkt var á Alþingi þann 19. júní 2012.
22.2.2013

Námskeið fyrir vinnuverndarfulltrúa

Mannvit hf. og Vinnuvernd ehf. standa fyrir námskeiði sem ætlað er vinnuverndarfulltrúum; öryggistrúnaðarmenn, öryggisverðir og mannauðsstjórar. Námskeiðið fer fram í Reykjavík  dagana 12. mars og 19. mars milli kl. 8:30-15:30. og stendur báða dagana. Það bókaðist hratt upp á síðasta námskeið auk þess sem biðlisti myndaðist.
20.2.2013

Mannvit aðili að Arctic Services

artcic servicesSteingrímur J. Sigfússon atvinnuvega – og nýsköpunarráðherra hleypti af stokkunum átakinu  Arctic Services á Akureyri. Að  baki þess standa um 35 fyrirtæki og stofnanir sem allar eiga það sammerkt að eiga erindi við verkkaupa og framkvæmdaraðila á norðurslóðum í krafti sinnar sérþekkingar og reynslu.
19.2.2013

Árni Magnússon tekur við sem framkvæmdastjóri Orku hjá Mannviti

Árni Magnússon hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Orku hjá Mannviti frá og með 15. mars næstkomandi og tekur sæti í framkvæmdastjórn fyrirtækisins.  Árni tekur við framkvæmdastjórastarfinu af Sigurði St. Arnalds sem lætur af starfinu að eigin ósk en mun áfram starfa við markaðsstörf og sem ráðgjafi Mannvits í orkumálum.  
8.2.2013

Námskeið fyrir vinnuverndarfulltrúa (öryggisverði,-trúnaðarmenn og mannauðsstjóra)

Mannvit og Vinnuvernd standa fyrir námskeiði sem ætlað er vinnuverndarfulltrúum dagana 26. febrúar og 5. mars milli kl. 8:30-15:30.
8.2.2013

Framúrskarandi fyrirtæki 2012

FramúrskarandiMannvit er í hópi þeirra íslensku fyrirtækja sem fengu bestu einkunn í styrk- og stöðuleikamati Creditinfo sem birt var í gær.
8.2.2013

Mannvit á framadögum

FramadagarÞað var stanslaus straumur á Mannvits básinn á Framadögum sem fram fóru í Háskólanum í Reykjavík þann 6. febrúar.
17.1.2013

Samningur vegna byggingar hjúkrunarheimilis á Egilsstöðum

UndirskriftFöstudaginn 11. janúar 2013 undirrituðu Björn Ingimarsson bæjarstjóri og Skarphéðinn Smári Þórhallsson, framkvæmdastjóri starfsstöðvar Mannvits á Egilsstöðum, verksamning um byggingastjórnun og eftirlit vegna byggingar hjúkrunarheimilis á Egilsstöðum.
4.1.2013

Sérleyfi veitt til rannsókna og vinnslu á Drekasvæðinu

Gudni undirritarOrkustofnun gaf í dag út tvö sérleyfi vegna leitar og vinnslu kolefna á Drekasvæðinu. Leyfin voru undirrituð að viðstöddum Steingrími J. Sigfússyni atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra og Borten Moe, olíu- og orkumálaráðherra Noregs, þar sem norska ríkisolíufélagið Petoro er með fjórðungshlut í báðum leyfum.
20.12.2012

Mannvit hlýtur styrk til nýtingar jarðvarma í Ungverjalandi

Jarðvarmaverkefni sem Mannvit í Ungverjalandi hefur þróað í samstarfi við þarlenda aðila er meðal 23 grænna evrópskra orkuverkefna sem hlutu styrk samkvæmt NER300 áætlun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
6.12.2012

Hönnun Mannvits á kerfum í Hörpu fær viðurkenningu

Harpa_Panorama1Mannvit hefur hlotið viðurkenningu Lagnafélags Íslands fyrir lofsverð lagna- og loftræstikerfi í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu. Það var forseti Íslands sem veitti Mannviti viðurkenninguna við hátíðlega athöfn í Hörpu  28. nóv. sl. Mannvit var verðlaunað fyrir hönnun lagna-,  loftræsti-, brunavarna- og rafstýrikerfa.
3.12.2012

Kolvetni ehf. fær sérleyfi fyrir rannsóknir og vinnslu kolvetnis á Drekasvæðinu

Kolvetni ehfOrkustofnun hefur ákveðið að veita félögunum Faroe Petroleum Norge AS  og Íslensku Kolvetni ehf. annars vegar og Valiant Petroleum ehf. og Kolvetni ehf. hins vegar, sérleyfi fyrir rannsóknir og vinnslu kolvetnis (olíu og gass) á Drekasvæðinu.
29.11.2012

GTN GmbH og Mannvit opna skrifstofu í Berlín

Logo_GTNHaustið 2012 opnaði Geothermie Neubrandenburg GmbH (GTN) nýja skrifstofu í Berlín. Skrifstofa GTN mun jafnframt gegna hlutverki sem skrifstofa Mannvits í Þýskalandi.  Þannig munu bæði fyrirtækin styrkja stöðu sína á íslensku og þýskum mörkuðum sem leiðandi fyrirtæki í nýtingu jarðhita.i
2.11.2012

Haukur Óskarsson með erindi á morgunverðarfundi Deloitte

DeloitteDeloitte stóð fyrir morgunverðarfundi á Grand Hótel Reykjavík, þann 1. nóvember þar sem var fjallað um olíumarkaðinn hér á landi og tengda þjónustu ef af olíuleit verður á Drekasvæðinu.
24.10.2012

Mannvit tilnefnt til Evrópuverðlauna fyrir vinnuvernd

Vinnuvernd_1Mannvit hlaut í gær  viðurkenningu Vinnueftirlitsins fyrir framúrskarandi vinnuverndarstarf á ráðstefnu í tilefni af Evrópsku vinnuverndarvikunni sem nú stendur yfir. Vinnueftirlitið tilnefndi Mannvit enn fremur fyrir Íslands hönd til Evrópuverðlauna fyrir góða starfshætti á sviði vinnuverndar í flokki fyrirtækja með fleiri en 100 starfsmenn. Þau verðlaun verða veitt
3.10.2012

Mannvit annast hönnun á nýju fangelsi

_MG_7450Mannvit og Arkís skrifuðu í síðustu viku undir samning um hönnun á nýju fangelsi á Hólmsheiði en tillaga Arkís var hlutskörpust úr hópi átján tillagna. Mannvit mun sjá um hönnun og útboð á jarðvinnu, burðarvirkjum, loftræstingu, lögnum og hljóðvist. Að auki mun Mannvit sjá um hönnun aðkomuvega og
21.9.2012

Mannvit hlýtur samgönguviðurkenningu Reykjavíkurborgar

SamgönguverðlaunMannvit hlaut í gær samgönguviðurkenningu Reykjavíkurborgar sem veitt var í fyrsta sinn við hátíðlega athöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur. Viðurkenningin var veitt í tengslum við evrópsku samgönguvikuna í september.
3.7.2012

Mat á stærð jarðhitasvæðis fyrir NGP í Kaliforníu

Nýverið vann Mannvit mat á stærð jarðhitasvæðis í Imperial Valley í Kaliforníu fyrir hönd Nevada Geothermal Power (NGP).
15.6.2012

Mannvit hlýtur viðurkenningu

lagnirFyrir nokkru hlaut Mannvit viðurkenningu fyrir lofsvert lagnaverk frá Lagnafélagi Íslands. Það var fyrir lagnahönnun og framkvæmd við Hjúkrunarheimilið í Mörkinni við Suðurlandsbraut 66.  
11.6.2012

Mannvit fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum

FyrirmyndarfyrirtaekiViðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins, Nasdaq OMX Iceland hf. og Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti við Háskóla Íslands hafa tekið höndum saman um að efla eftirfylgni íslenskra fyrirtækja við góða stjórnarhætti. Í þeim tilgangi er fyrirtækjum gefinn kostur á að að undirgangast formlegt mat á starfsháttum stjórnar og stjórnenda. Mannvit hf. hefur nú staðist
16.5.2012

Mannvit til fyrirmyndar 2012

VR_2012Mannvit lenti í 7. sæti í vali VR á fyrirtæki ársins 2012 í flokki stórra fyrirtækja. Með þessum árangri vann Mannvit til sæmdarheitisins „Fyrirtæki ársins 2012“ en 10 efstu fyrirtækin í hverjum flokki hljóta þann titil.
25.4.2012

Mannvit hannar ammoníakgeymi í Póllandi

Nýlega skrifaði Mannvit undir samning vegna hönnunar á 15.000 tonna kældum ammoníakgeymi (mínus 33°C). Kaupandi þjónustunnar er  pólska fyrirtækið Zaklady Azotowe PULAWY S.A sem er einn stærsti útflytjandi iðnaðarvöru frá Póllandi og jafnframt umfangsmesti áburðarframleiðandi í landinu síðustu fjörutíu árin.
18.4.2012

Mannvit einn stofnaðila íslenska sjávarklasans

Íslenski sjávarklasinn var formlega stofnaður á þessu ári og nýverið gerðist Mannvit stofnaðili að klasanum. Markmið Mannvits með þátttökunni er að stuðla að aukinni verðmætasköpun, uppbyggingu þekkingar og bættri samkeppnishæfni innan klasans.
2.4.2012

Kolvetni hefur sótt um sérleyfi til rannsókna og vinnslu á Drekasvæðinu

IMG_5967-1Seinna útboði vegna sérleyfa á Drekasvæðinu lauk í dag. Alls sóttu þrjú félög um sérleyfi vegna rannsókna og vinnslu kolvetnis á svæðinu. Þar á meðal er Kolvetni ehf,nýstofnað félag sem er í 25% eigu Mannvits.  
9.2.2012

Mannvit þátttakandi í evrópska GEOELEC verkefninu

geoelecMannvit er þátttakandi í GEOELEC verkefninu sem er st