Vilt þú starfa hjá Mannviti?


 

Mannvit er sífellt í leit að hæfileikaríku fólki sem hefur áhuga á að starfa í ört vaxandi fyrirtæki með áhugasömu og metnaðarfullu starfsfólki. Mannvit er framsækið fyrirtæki þar sem ríkir góður starfsandi og hvetjum við alla sem hafa áhuga á að vera hluti af sterkri liðsheild fyrirtækisins að sækja um.

Hægt er að senda inn almenna umsókn eða sækja um auglýst starf hér fyrir neðan.

Almenn umsókn      Auglýst starf

Nánari upplýsingar veita Áslaug Ósk Alfreðsdóttir eða Elsa Grímsdóttir í síma 422-3000 (vinsamlegast sendið ekki umsókn í tölvupósti heldur notið Almenna umsókn).

Meðferð umsókna:
Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum um auglýst störf er svarað þegar ráðið hefur verið í starfið. Öðrum umsóknum er svarað um leið og þær berast og eru geymdar í sex mánuði. Þeim er síðan eytt nema þú hafir samband við okkur og látir vita hvort framlengja eigi gildistíma umsóknarinnar.