Mat á umhverfisáhrifum


 

Frá setningu laga um mat á umhverfisáhrifum hefur Mannvit verið í fararbroddi þeirra ráðgjafarfyrirtækja sem unnið hafa að mati á umhverfisáhrifum framkvæmda og nú einnig umhverfismati áætlana.

Starfssvið og sérþekking starfsmanna Mannvits nær m.a. yfir:

  • Athugun á matsskyldu
  • Mat á umhverfisáhrifum framkvæmda
  • Mat á umhverfisáhrifum áætlana
  • Rannsóknir og umhverfisvöktun
  • Skipulagsmál og leyfisumsóknir
  • Kortagerð og myndvinnslu
  • Kynningu og samráð
  • Verkefnisstjórn


Helstu verkefni

Starfsfólk Mannvits býr yfir víðtækri reynslu við mat á umhverfisáhrifum. Þessi reynsla endurspeglast í fjölbreytileika þeirra verkefna sem unnin hafa verið hjá Mannvit á þessu sviði. Má þar nefna:

  • Stóriðju
  • Jarðhitavirkjanir
  • Vatnsaflsvirkjanir
  • Háspennulínur
  • Samgöngumannvirki
  • Landfyllingar
  • Hafnargerð
  • Kísilgúrvinnslu
  • Snjóflóðavarnir
  • Sorpförgun
  • Skipulagsáætlanir

Frekari upplýsingar veita Axel V. Birgisson og Auður Andrésdóttir.


Hvað er mat á umhverfisáhrifum?