Frummatsskýrsla
Orkuveita Reykjavíkur fyrirhugar nýtingu jarðhita á nýju vinnslusvæði við Gráuhnúka í Sveitarfélaginu Ölfusi.
Framkvæmdin er matsskyld samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 m.s.br. Hafin er opinber kynning á vegum Skipulagsstofnunar og má nálgast frummatsskýrslu hér á síðunni ásamt viðaukum. Í frummatsskýrslunni er fyrirhugaðri framkvæmd og framkvæmdasvæði lýst og gerð grein fyrir grunnástandi, helstu umhverfisþáttum og rannsóknum ásamt umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar.
Opinn kynningarfundur verður í húsi Orkuveitunnar að Bæjarhálsi 1 þann 14. apríl n.k. frá kl. 16:30 til 18:30.
Allir hafa rétt á að kynna sér frummatsskýrsluna og koma athugasemdum og fyrirspurnum á framfæri til Skipulagsstofnunar sbr. upplýsingar á heimasíðu stofnunarinnar.
Frestur til að gera athugasemdir er til 10. maí 2011.
Frummatsskýrsla_Gráuhnúkar.pdf
Yfirlitsmynd.pdf
Vidauki_1-Spá_um_viðbrögð_jardhitakerfisins.pdf
Vidauki_2-Landslag_á_Hengilssvæðinu.pdf
Vidauki_3-Jardfræði_Gráuhnúkar.pdf
Vidauki_4-Gróður_og_fuglar_Gráuhnúkar.pdf
Vidauki_5-Fornleifar_Gráuhnúkar.pdf
Vidauki_6_H2S_dreifingarspá.pdf