Byggingar


 

Mannvit býr að reynslu og þekkingu á öllum sviðum húsbygginga sem Íslendingar hafa notið góðs af í áratugi.

Ætla má að við höfum tekið þátt í að hanna yfir 300.000 m² af skrifstofu-, þjónustu- og verslunarhúsnæði á Íslandi árið 2007. Þar má nefna Tónlistar- og ráðstefnuhús í Reykjavík, nýbyggingu Háskólans í Reykjavík og stór verslunar- og skrifstofuhús á höfuðborgarsvæðinu og víðar um land.

Hvort sem um er að ræða frumhönnun eða burðarþolshönnun bygginga eða annarra mannvirkja, hönnun lagna-, loftræsti-, raf- og stjórnkerfa, skipulagningu brunavarna eða hönnun fjölþættra hljóðvistarlausna búa sérfræðingar Mannvits yfir þeirri þekkingu sem þarf til úrlausnar verkefnisins.

Nánari upplýsingar:


 

Tryggvi Jónsson_sv_2

Tryggvi Jónsson

Framkvæmdastjóri mannvirkja

Netfang: tj@mannvit.is