Endurnýjanleg orka og loftslagsmál


 

Mannvit hefur sérhæft sig í þróun á tækni til nýtingar endurnýjanlegrar orku, orkunýtingar og annarra leiða til að minnka útblástur gróðurhúsalofttegunda.  Fyrirtækið hefur yfir 40 ára reynslu í jarðhitanýtingu, vatnsaflsvirkjunum, hitaveitum og fleiri verkefnum sem í takt við stefnu fyrirtækisins draga úr og jafnvel snúa við loftslagsbreytingum.

 

Ísland er ein af leiðandi þjóðum í nýtingu endurnýjanlegrar orku. Í dag uppfylla endurnýjanlegir orkugjafar 100% af rafmagnsþörf þjóðarinnar og nánast 90% af hitunarþörf með jarðhitaveitu.  Ísland fær þessa orku úr tveimur endurnýjanlegum orkugjöfum, jarðvarma og vatnsorku, en Mannvit hefur leikið stórt hlutverk í  þróun til nýtingar þessara orkukosta síðan snemma á áttunda áratugnum.

 

Mannvit býður upp á alhliða ráðgjafar- og verkfræðiþjónustu á öllum sviðum endurnýjanlegra og óhefðbundinna orkugjafa, allt frá hönnun og byggingu umhverfisvænna lífgas- og lífendsneytisstöðva til endurbóta á orkuflutningskerfum, jarðgerðarstöðva, grænna netþjónabúa, minnkun og bindingu koldíoxíðs (CO2), kolefnisendurvinnslu, samþættrar varma- og raforkuvinnslu og fleira.  Fyrirtækið býður upp á þverfaglega þjónustu og áratuga reynslu sem tryggir sem bestan árangur í öllum verkefnum viðskiptavina okkar.

 

Sérþekking: Þjónusta
  • Verkfræði
  • Þróun
  • Rannsóknir
  • Áætlanir og stefnumótun
  • Hagkvæmniathuganir
  • Mat á umhverfisáhrifum
  • Upplýsingatæknistjórnun
  • Verkefnisstjórnun
  • Byggingarstjórnun
  • EPCM verkefni
  • Áreiðanleikakönnun
  • Innkaup



Nánari upplýsingar:


 

 Árni Magnússon-9518_sv_min

Árni Magnússon

Framkvæmdastjóri orku

Netfang: arnim@mannvit.is