Iðnaður


 

Mannvit hefur komið að öllum helstu verkþáttum við gerð mannvirkja sem tengjast orkufrekum iðnaði á Íslandi og býr fyrirtækið nú að mjög sérhæfðri tækniþekkingu til að þjónusta áliðnaðinn, innanlands sem utan.

Alhliða þjónusta á sviði vélaverkfræði er aðalsmerki Mannvits og hafa sérfræðingar fyrirtækisins leyst fjölbreytt og flókin verkefni í vélahönnun, s.s. fyrir olíuiðnaðinn, efnaverksmiðjur, fiskimjölsverksmiðjur, veitur, sorpvinnslur, leikhús og metangasvinnslu.

Verkefni tengd umhverfisvænum orkugjöfum, metani, lífetanóli, lífdísil og vetni, eru spennandi áskoranir. Það sama á við um þróun nýrra tæknilausna í umhverfisvænni orkuvinnslu, eins og Kalina tækni og ORC-rafstöðvar, ásamt gasvinnslu og jarðgerð úr lífrænum úrgangi, sorpi og fleiru.

Nánari upplýsingar:


 

Haukur Óskarsson

Haukur Óskarsson

Framkvæmdastjóri iðnaðar

Netfang: haukuro@mannvit.is