Jarðvarmavirkjanir
Jarðvarmavirkjanir

Mannvit hefur margra ára reynslu af undirbúningi jarðvarmavirkjana á Íslandi og erlendis og sinnir ráðgjöf, hönnun, verkstjórn eða framkvæmdaeftirliti í stórum sem smáum verkefnum.
Helstu jarðvarmaverkefni Mannvits snúa að virkjun háhitasvæða og hönnun virkjana til framleiðslu á rafmagni og heitu vatni, sem og hönnun virkjana sem framleiða rafmagn með nýtingu lághita í tvívökvakerfi.
Mannvit hefur í mörgum tilvikum verið frumkvöðull á heimsvísu við að leysa flókin viðfangsefni varðandi hagnýtingu jarðvarma. Samþætting raforku- og heitavatnsframleiðslu, sem stórbætir varmanýtingu jarðhita, og þróun rafstöðvar á Húsavík, sem notar Kalina tækni til að framleiða raforku með heitu vatni, eru dæmi um slík verkefni. Áform um orkuver í Evrópu byggjast að talsverðu leyti á þróun Mannvits á Kalina tækninni.