Mælingar og rannsóknir


 

Mannvit býður upp á mælinga og rannsóknarþjónustu á ýmsum sviðum.  Fyrirtækið hefur innan sinna raða, reynda og vel þjálfaða sérfræðinga, sem og allan nauðsynlegan búnað til að sinna verkefnum á sviði vatnamælinga, landmælinga, jarðfræði og hljóðvistar.

 

Eigi verkfræðiþjónusta að skila árangri þarf að huga að öllum hliðum verkefnis, frá upphaflegri hugmynd til framkvæmdar.  Vettvangsþjónusta eins og landmælingar og jarðfræðilegar og vatnafræðilegar rannsóknir ákvarða þá lykilhönnunarþætti sem nauðsynlegir eru í hverju verkefni fyrir sig.  Þegar vettvangsgögnum hefur verið safnað og þau kynnt, getur áætlana-, hönnunar og líkanavinna hafist.  Að sami aðili sjái bæði um vettvangsrannsóknir og verkfræðihönnun, tryggir að upplýsingarnar séu rétt túlkaðar og stuðlar að betri nýtingu þeirra.  Þegar þessum fyrstu skrefum er lokið og verkefnið er komið af stað, er samhæfingu vettvangsteymis og verkefnateymis viðhaldið til að tryggja góðan árangur verkefnisins.

 

Mannvit býður upp á mælinga- og rannsóknarþjónustu fyrir allar stærðir verkefna, hvar sem er í heiminum.

 

Dæmigerð verkefni:

  • Rennslismælingar í lögnum
  • Grunnvatnsmælingar
  • Vatnsgæði
  • Borholumælingar
  • Landmælingar
  • Hávaði frá umferð og framkvæmdasvæðum
  • Umhverfishávaði
  • Hljóðvist í byggingum

Þjónusta:

Tengd þjónusta:

Nánari upplýsingar:


 

Tryggvi Jónsson_sv_2

Tryggvi Jónsson

Framkvæmdastjóri mannvirkja

Netfang: tj@mannvit.is