Rannsóknarstofa


 

Rannsóknarstofa MannvitsRannsóknarstofa Mannvits er stærsta einkarekna rannsóknarstofan á sínu sviði. Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á rannsóknir á styrk og endingu jarðefna og steinsteypu. Prófanir fara einnig fram á almennum eiginleikum steinefna og á sviði vegtækni, þ.á m. á veðrunar- og slitþoli steinefna í burðar- og slitlög. Þá aukast stöðugt sérhæfðari prófanir á sviði berg- og jarðtækni.

 

Umsvif rannsóknarstofunnar hafa aukist ár frá ári og sífellt er unnið að því að auka fjölbreytnina í þjónustunni. Aðstaða er til flestra hefðbundinna prófana og rannsókna á steinsteypu, malbiki og stáli svo fátt eitt sé nefnt.

 

Mannvit á og rekur rannsóknarstofur í Reykjavík og á Akureyri og á að auki færanlega rannsóknarstofu sem hægt er að setja upp tímabundið á verkstað t.d. vegna framkvæmdaeftirlits.

 

Rannsóknarstofa Mannvits er í samstarfi við erlenda aðila, meðal annars um rannsóknir á alkalískemmdum í steypu þar sem unnið er að þróun nýrra prófunaraðferða.

Auk allra helstu rannsókna er boðið upp á sérfræðimat og ráðgjöf varðandi túlkun á rannsóknarniðurstöðum og mat á því hvort efni standist þar til gerðar kröfur. Jafnframt er boðið upp á aðstoð við framleiðslu- og framkvæmdaeftirlit.

Rannsóknarstofa Mannvits hefur verið starfrækt frá árinu 1993. Stjórnkerfi stofunnar uppfyllir kröfur alþjóðlega gæðastaðalsins ÍST EN ISO 9001:2008. Fylgt er kröfum ÍST EN ISO/IEC 17025:2005 um almennar kröfur varðandi hæfni prófunar- og kvörðunarstofa. 

Nánari upplýsingar:


 

Þorbjörg Hólmgeirsdóttir

Fagstjóri rannsóknarstofu

Netfang: thth@mannvit.is