Efnisrannsóknir


 

Mannvit hefur áralanga reynslu af efnisrannsóknum. Breidd þeirra er mikil og sífellt bætast fleiri við. Unnið er eftir alþjóðlegum stöðlum og mikil áhersla lögð á fagmennsku við framkvæmd og úrvinnslu.

Efnisrannsóknir eru mikilvægur hluti hönnunarferla í mannvirkjagerð. Verkfræðikenningar byggja að miklu leyti á eiginleikum byggingarefna og því nauðsynlegt að meta þá áður en farið er í framkvæmdir. Með efnisrannsóknum er oft hægt að sjá og koma í veg fyrir ýmis kostnaðarsöm og jafnvel hættuleg vandamál og helst það iðulega í hendur, að víðtækar efnisprófanir í hönnunar- og framkvæmdarferli  leiða af sér að kostnaður við mannvirkjagerð lækkar.

Mikilvægt er að huga að rannsóknum á fyrstu stigum hönnunarferlisins og gera rannsóknaráætlun því prófanir taka mislangan tíma. Það getur bæði tafið framkvæmdir og verið kostnaðarsamt ef rannsóknir hefjast seint.

Skipta má efnisrannsóknum Mannvits í nokkra flokka eftir efnisgerðum:

Í umfjöllun um einstaka flokka eru nánar tilgreindar þær prófanir sem gerðar eru. Rétt er að benda á að listinn er ekki tæmandi. Starfsfólk rannsóknarstofu veitir fúslega frekari upplýsingar.

 

Sýnataka og meðhöndlun sýna


 

Sýnataka og meðhöndlun sýna er einn mikilvægasti þáttur sérhverrar rannsóknar. Sýnataka sem ekki er rétt staðið að skekkir niðurstöður meira en flest annað í ferlinu. Því er í öllum tilfellum nauðsynlegt að vanda sýnatöku og fylgja viðeigandi stöðlum til að tryggja sem nákvæmastar niðurstöður.

Viðskiptavinir geta valið um að annast sýnatöku sjálfir eða nota sér þjónustu rannsóknarstofunnar við sýnatöku. Kjósi þeir að annast þennan hluta sjálfir er þeim bent á að kynna sér vel þær kröfur sem viðeigandi staðlar gera varðandi sýnatöku, meðhöndlun sýna og stærð þeirra.