Stál

Hjá Mannviti starfar hópur sérfræðinga með mikla reynslu á sviði véla, stálvirkja og annarra málmvirkja svo og hvers konar lagnakerfa. Auk hönnunar og eftirlits með málmsmíði fást þeir við prófanir, skoðun og mat á efniseiginleikum og vinnugæðum. Í rannsóknarstofu Mannvits eru gerðar aflfræðilegar prófanir á stáli og öðrum málmum, m.a. ákvörðuð flotmörk, togstyrkur og brotlenging. Prófanir eru m.a. gerðar á:

  • Plötum, rörum og hverskonar prófílum.
  • Boltum og öðrum festingum.
  • Bendistáli, bendinetum, spennistáli og vírum.



STÁLPRÓFANIR

  • Flotmörk
  • Togstyrkur
  • Brotlenging
  • Mælingar eru gerðar á:
    • Bendistáli
    • Bendineti
    • Spennistáli
    • Sýnum úr plötum, bitum, rörum og öðrum prófílum
    • Kopar og koparblöndum