|
|
Þorbjörg Hólmgeirsdóttir Jarðverkfræðingur. Þorbjörg er fagstjóri rannsóknarstofu Mannvits hf. Hún lauk B.Sc. prófi í jarðfræði frá HÍ árið 1988 og M.Sc. í jarðverkfræði frá Strathclyde háskóla, Glasgow, árið 1993.
Þorbjörg starfaði við rannsóknir og kennslu hjá Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins (Rb), Strathclyde háskóla, HÍ og ERGO Engineering Geology þar til hún gekk til liðs við Mannvit árið 2003. Sérsvið Þorbjargar eru rannsóknir og prófanir á eiginleikum steinefna og gæðastjórnun.
Þorbjörg hefur setið í stjórnum Steinsteypufélags Íslands og Sambands íslenskra prófunarstofa. Þorbjörg er jafnframt stundakennari við Háskólann í Reykjavík.
|
|

|
|
Sveinbjörn Sveinbjörnsson Byggingarverkfræðingur. Sveinbjörn lauk B.Sc. prófi í byggingartæknifræði frá Tækniskóla Íslands 1976 og M.Sc. prófi í byggingarverkfræði frá Lunds Tekniska Högskola í Svíþjóð 1979.
Sveinbjörn starfaði sem eftirlitsverkfræðingur hjá Landsvirkjun við byggingu Hrauneyjafossvirkjunar, Sultartangastíflu og Blönduvirkjunar, hjá Rb og hjá Harza Engineering í Venezuela. Í árslok 1993 réðst hann til Mannvits.
Sérsvið Sveinbjörns eru steypuforskriftir fyrir sértækar aðstæður, að undangengnum steypuefnisrannsóknum.
|
|

|
|
Dr. Gísli Guðmundsson Jarðefnafræðingur. Gísli lauk B.Sc. prófi í jarðfræði frá Háskóla Íslands árið 1983, M.Sc. í jarðefnafræði frá Arizona State University, USA árið 1988 og Ph.D. í jarðefnafræði árið 1992 frá sama skóla.
Gísli starfaði sem sements- og steinsteypusérfræðingur hjá Rb þar til hann hóf störf við steypurannsóknir og byggingaeftirlit hjá Mannviti árið 2004.
Sérsvið Gísla eru rannsóknir á endingu steinsteypu, meðal annars með tilliti til tæringarhættu, veðrunarþols og alkalívirkni.
|

|
|
Dr. Børge Johannes Wigum Jarðverkfræðingur.
Børge lauk B.Sc.prófi í jarðfræði frá HÍ árið 1988, jarðverkfræði frá NTH í Þrándheimi 1990 og Ph.D. frá sama skóla 1995.
Børge rak eigið fyrirtæki á Íslandi undir nafninu ERGO Engineering Geology ehf. þar til hann hóf störf hjá Mannvit, árið 2003.
Sérsvið Børges eru rannsóknir á alkalívirkni. Børge er einnig prófessor við Háskólann í Þrándheimi. Hann er virkur í alþjóðlegu samstarfi og á sæti í fjölmörgum alþjóðlegum nefndum.
|
|

|
|
Guðrún Eva Jóhannsdóttir Jarðfræðingur.
Guðrún Eva lauk B.Sc. prófi í jarðfræði frá Háskóla Íslands árið 2003 og M.Sc. í jarðfræði frá sama skóla árið 2007.
Hún hefur sinnt öllum helstu steinefna-, jarðtækni- og vegtækniprófunum á rannsóknarstofu Mannvits.
Guðrún Eva starfaði sem rannsóknarmaður við Háskóla Íslands áður en hún hóf störf á rannsóknarstofu Mannvits árið 2007.
|
|

|
|
Guðbjartur Jón Einarsson Byggingarverkfræðingur. Guðbjartur Jón lauk B.Sc. prófi í byggingartæknifræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2006 og M.Sc. í byggingarverkfræði frá Háskólanum í Delft, Hollandi, árið 2010.
Hann hefur víðtæka reynslu af prófunum byggingarefna, sem og smásjárgreiningu steinsteypu og steypuskemmda.
Guðbjartur starfaði um skeið á rannsóknarstofunni Microlab við Háskólann í Delft. Guðbjartur hefur starfað með hléum á rannsóknarstofu Mannvits frá árinu 2005.
|
|

|
|
Mattías Loftsson
Jarðverkfræðingur.
Mattías lauk M.Sc. gráðu í jarðverkfræði frá Waterloo University í Kanada 1984 og B.Sc. gráðu í jarðfræði frá Háskóla Íslands 1979.
Hann er bergtækni verkfræðingur með mikla tæknilega þekkingu og áralanga reynslu af bergtækni, jarðverkfræði og grundun.
Sérsvið hans eru meðal annars jarðgangnagerð, bergþéttingar, jarðfræði og bergtæknirannsóknir. Mattías hefur verið verkefnisstjóri yfir bergtæknirannsóknum í mörgum stórum verkefnum tengdum vatnsaflsvirkjunum og iðnaði. Hann hóf störf hjá Mannviti árið 1993.
|
|

|
|
Atli Karl Ingimarsson
Jarðverkfræðingur.
Atli Karl lauk B.Sc. prófi í jarðfræði frá Háskóla Íslands 1998 og M.Sc. jarðverkfræði frá NTNU í Þrándheimi 2003.
Hann hefur reynslu og þekkingu á hönnun gangna, jarðfræði grunnrannsóknum, jarðtæknirannsóknum, bergstyrkingum og eftirliti með verkefnum við vatnsaflsvirkjanir og gangnagerð.
|
|

|
|
Sigurjón Árnason Húsasmíðameistari. Sigurjón hefur hefur yfirgripsmikla þekkingu og reynslu af starfsemi rannsóknarstofu Mannvits og hefur sinnt og verkstýrt flestum þeim prófunum sem gerðar eru á stofunni. Að auki hefur hann bæði þekkingu og reynslu af sýnatöku í mörkinni. Sigurjón hefur starfað á rannsóknarstofu Mannvits frá árinu 1995.
|
|

|
|
Eyþór Bjarnason Múrari. Eyþór hefur yfirgripsmikla þekkingu og reynslu á flestum steinefna- og steinsteypuprófunum rannsóknarstofunnar sem og sýnatöku í mörkinni.
Hann starfaði einnig tímabundið sem fulltrúi SIKA á Íslandi. Eyþór hefur starfað á rannsóknarstofu Mannvits, áður Hönnun, frá árinu 2002.
|
|

|
|
Kristinn Magnússon Byggingartæknifræðingur.
Kristinn lauk B.Sc. í byggingartæknifræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2009.
Hann starfaði áður við múrverk og sjómennsku.
Kristinn hefur reynslu af malbiks-, vegtækni- og steinefnisprófunum. Kristinn hefur starfað á rannsóknarstofu Mannvits á Akureyri frá árinu 2008.
|