Plötupróf
Plötupróf
Rannsóknarstofa Mannvits framkvæmir plötupróf.
Plötupróf er notað til að mæla þjöppun jarðvegsfyllinga. Það er gert á verkstað fyrir ýmis mannvirki svo sem húsbyggingar og vegi.
Prófunin fer þannig fram að mælt er álag og sig plötu sem er 450 mm í þvermál (algengasta þvermál).
Vökvatjakki, sem mælir þrýstiálag, er komið fyrir á plötunni.
Yfir tjakknum er vörubíll með hlassi, grafa eða valtari til að spyrna við tjakkinn.
Tjakkað er í nokkrum þrepum. Sjálfberandi slá ber uppi 3 mæliúr sem mæla sigið.
Plötuprófið gefur einnig nálgun á burðarþoli/broti jarðvegsfyllinga úr kornóttum jarðvegi (granular) eða samlímdum (cohesive).
Nánari upplýsingar um upplýsingar:
Sigurjón Árnason
Netfang: sigurjon@mannvit.is
Sími: 422-3010 eða 842-3010.