Samgöngur, veitur og skipulag
Samgöngur, veitur og skipulag
Með uppbyggingu í þéttbýli og aukinni vitund íbúa um nágrenni sitt verða umferðar- og skipulagsmál sífellt umfangsmeiri og flóknari. Sérfræðingar Mannvits veita alhliða ráðgjöf á sviði samgönguskipulags, m.a. með umferðarspám og umferðarhermun.
Hjá fyrirtækinu er mikil þekking á gerð hvers konar samgöngumannvirkja, s.s. jarðganga, flugvalla, hafna, vega og brúa.
Mannvit býr yfir víðtækri reynslu og þekkingu á hönnun veitumannvirkja, hvort sem um er að ræða hitaveitur, vatnsveitur, gagnaveitur eða fráveitur, sem og við gerð dælustöðva og útrása.