Upplýsingatækni
Upplýsingatækni
Mannvit veitir fjölbreytta þjónustu á sviði upplýsingatækni og býr fyrirtækið yfir mikilli reynslu og þekkingu þar að lútandi.
Ráðgjöf á sviði fjarskipta fyrir fyrirtæki, stofnanir og stjórnvöld auk þjónustu við fjarskiptafyrirtæki er eitt af þjónustusviðum fyrirtækisins. Við aðstoðum við úttektir, kostnaðar- og þarfagreiningar, hönnun, útboð, prófanir, gangsetningu kerfa og verkefnisstjórn.
Mannvit hefur áratuga reynslu á sviði stjórnkerfa m.a. fyrir stóriðju, iðnað af ýmsum toga, orkuver, flutningskerfi raforku, byggingar og veitur rafmagns, hita, vatns og frárennslis.
Sérfræðingar Mannvits veita alhliða þjónustu á sviði stýritækni. Sérhæfð hugbúnaðargerð á tæknisviði, ráðgjöf um hugbúnaðarinnkaup og verkefnisstjórn við innleiðingu hugbúnaðar er eitt af verkefnum sérfræðinga Mannvits, ásamt kerfisverkfræði stórra tæknikerfa með áherslu á rekstraröryggi.
Í samvinnu við önnur svið Mannvits leggjum við áherslu á þverfaglega ráðgjöf um hönnun vinnsluferla og tilheyrandi upplýsingatækni.
Bæklingur.pdf